Lost Horse Gallery 12. Mars 2011

Kristinn Már Pálmason (1967) og Sigurbjörn Ingvarsson (1969)
sýna málverk í Lost Horse Gallery,
Hverfisgötu 71.

Sýningin opnar laugardaginn 12. mars kl.19.00 og stendur til 15. april.

Hverfisgata 71 er aldargamalt Reykvískt timburhús á steinhlöðnum sökkli. Gólf sýningarrýmis Lost
Horse er steinhellur ofaní sökklinum, upprunalegt kjallargólf hefur verið fjarlægt, gólf 1. hæðarinnar
hefur verið fjarlægt líka og allur annar óþarfi. Galleríið nýtir kjallara og fyrstu hæð hússins sem einn
sýningarsal.